Notkunarskilmálar fyrir smart ID
smart Europe GmbH , Esslinger Strasse 7, 70771 Leinfelden-Echterdingen, Þýskalandi, skráð hjá verslanaskrá Héraðdómstóls Stuttgart undir númerinu HRB 774212 („ smart" eða „ við") veitir notandanum („ notandi" eða „ þú") einstaklingsaðgangssauðkenni (" smart auðkenni") og samsvarandi einstaklingsbundinn notandaaðgang (saman „smart aðgangur" ). Meðþví að skrá þig fyrir smart aðgangi ert þú að gera við okkur samning um notkun („ notkunarsamningur") sem grundvallast á eftirfarandi skilmálum („ skilmálarnir"). Þú getur sótt og prentað eða vistað skilmálana hvenær sem er með því að smella á hnappinn [„Smart ID notkunarskilmálar"] á smart aðgangi þínum. Samningssamband þitt vegna smart aðgangsins er því eingöngu við smart og ekki við söluaðila bifreiðar.
Gildissvið 1.1 Skilmálarnir gilda um notkun smart aðgangsins og smart auðkennisins og alla tengda þjónustu og aðgerðir. 1.2 Önnur þjónusta sem þú gætir fengið aðgang að, skráð þig fyrir eða skráð þig inn á með smart auðkenninu þínu gæti verið háð viðbótarskilmálum okkar eða þriðju aðila, sem ganga framar þessum skilmálum.
Smart aðgangurinn þinn og snjallauðkenni 2.1 Smart leggur sig fram við að veita þér persónumiðaða upplifun sem er óaðskiljanlegur hluti af allri þjónustu okkar og samningsbundnu sambandi okkar við þig. Lykilþáttur í persónusniðinni upplifun þinni er smart aðgangurinn, þ.e. miðlæga og einstaklingsbundna gáttin þín fyrir öll samskipti við okkur og smart vistkerfið. 2.2 Þú þarft smart aðgang:
- til kaupa á viðbótarþjónustu,
- til að virkja virknibúnað í bifreið (háð aukagjöldum, ef við á),
- til að nota Hello smart forritið (háð framboði),
- til að bóka tíma á verkstæði hjá viðurkenndum smart þjónustuaðila þínum,
- til að uppfæra persónuupplýsingar þínar og kjörstillingar. Þú gætir líka notað smart aðganginn þinn til að hafa samband við þjónustuver og fyrir margt fleira. 2.3 smart kann að deila smart auðkenni þínu og tengdum upplýsingum innan smart og vistkerfis smart, þar með talið (en ekki takmarkað við) með hlutdeildarfélögum smart, viðskiptaaðilum smart, viðurkenndum þjónustuaðilum smart, þjónustuveitendum og öðrum samstarfsaðilum í samræmi við lög um persónuvernd ef það er nauðsynlegt fyrir veitingu þjónustunnar, til að afhenda vörur eða til að veita þér persónumiðaða neytendaupplifun. 2.4 Stofnun og notkun smart aðgangsins sjálfs er ókeypis.
Skráning; smart auðkenni; notkun smart aðgangs; öryggi 3.1 Þú getur skráð þig og stofnað aðgang. Þú verður að gefa upp upplýsingar um hvernig þú óskar að vera ávarpaður/ávörpuð/ávarpað (e. salutation), fornafn, eftirnafn, tölvupóst (smart auðkenni) og lykilorð. Með því að smella á hnappinn fyrir skráningu samþykkir þú skilmálana og gerir notkunarsamning við okkur. 3.2 Til að skrá þig fyrir smart aðgangi verður þú að vera að minnsta kosti 18 ára. 3.3 Þegar þú nýskráir smart aðganginn þinn búum við til einstaklingsaðgangsauðkenni fyrir þig, smart auðkennið þitt, sem er það sama og netfangið sem þú gafst upp. Smart auðkennið er þinn einstaklingsbundni lykill að öllu vöru- og þjónustuúrvali smart sem og smart vistkerfinu. 3.4 smart aðgangurinn þinn veitir einnig aðgang að stafrænum tilboðum og þjónustu í tengslum við ökutækið þitt. Slík tilboð geta verið tilboð frá smart eða frá þriðju aðilum og kunna þau að vera háð greiðslu. Ef tilboðin eru gerð af þriðju aðilum er samningur um útvegun á efnislegum eða stafrænum vörum eða þjónustu gerður beint og eingöngu milli þín og þriðja aðilans sem býður vörurnar eða þjónustuna, háð samningsskilmálum og skilyrðum viðkomandi þriðja aðila. 3.5 Þú getur eytt smart aðgangi þínum hvenær sem er. Við eyðingu hefur þú ekki lengur aðgang að og getur ekki notað smart aðganginn þinn og þjónustu sem tengist honum. Ef smart aðgangurinn þinn er notaður til að standa við viðvarandi samningsbundna skuldbindingu gagnvart þér (t.d. þegar um er að ræða greidda þjónustu) þarft þú að segja upp þjónustunni áður en smart aðgangi þínum er eytt. Eyðing smart aðgangsins er aðeins möguleg í lok samningstímabils slíkrar þjónustu.
Skyldur þínar sem notandi 4.1 Þú ábyrgist að öll gögn sem þú gefur upp við skráningu sé rétt og fullnægjandi. Komi til síðari breytinga verður alltaf að halda uppfærðum þeim gögnum sem geymd eru á smart aðgangi, einkum gögnum er varða heimilisfang, greiðslur og tengiliði. 4.2 Aðeins má nota smart aðganginn og smart auðkennið í samræmi við markmið (i) þessara skilmála eða (ii) í samræmi við markmið annarra samninga sem smart auðkennið er notað fyrir. 4.3 Þér er ekki heimilt að:
- afrita, þýða, breyta, bakþýða, taka í sundur eða bakhaga (e. reverse engineering) smart aðganginn eða endurheimta eða að reyna að endurheimta frumkóðann og/eða algrímið, nema kveðið sé á um heimild til slíks í þessum skilmálum eða í lögum;
- fjarlægja, fara í kringum, bakhaga, afkóða eða á annan hátt breyta eða eiga við eiginleika er tengjast stafrænni réttinda- eða afritunarvörn í smart aðganginum eða annarri tækni sem notuð er til að stjórna aðgangi að smart aðganginum. 4.4 Þú átt ekki rétt á að selja, lána eða leigja út til lengri eða styttri tíma smart auðkennið eða réttinn til að fá aðgang að smart aðganginum. Smart áskilur sér rétt til að bjóða upp á virkni sem gerir notandanum kleift að veita öðrum notendum aðgang að ákveðnum aðgerðum í smart aðganginum þínum. 4.5 Smart getur lokað aðgangi þínum að smart aðganginum, í heild eða að hluta, tímabundið eða varanlega, að eigin vild ef rökstuddar ástæður eru til að ætla að þú brjótir eða hafir brotið gegn ákvæðum skilmálanna og/eða gildandi lögum, eða ef smart hefur aðra lögmæta hagsmuni gagnvart lokun á aðgangi þínum. Þegar ákvörðun er tekin um lokun mun smart taka tillit til lögmætra hagsmuna þinna með viðeigandi hætti. Ef þú brýtur ítrekað gegn skilmálunum þrátt fyrir aðvörun, áskilur smart sér rétt til að loka aðgangi þínum varanlega. Smart mun tafarlaust upplýsa þig um slíka lokun með tölvupósti.
Hugverkaréttur 5.1 smart eða leyfisveitendur þess eru eigendur að öllum höfundarrétti, vörumerkjum og öðrum hugverkaréttindum sem tengjast smart aðganginum og öllu því efni sem smart lætur þér í té, sem hluti af smart aðganginum. Efni þetta má ekki afrita, dreifa, endurhanna eða nýta á annan hátt án skriflegs samþykkis smart. 5.2 smart veitir þér tímabundinn, afturkallanlegan, óframseljanlegan rétt, sem felur ekki í sér einkarétt, til að nota smart aðganginn að því marki sem samið er um samkvæmt skilmálum þessum. Rétturinn fellur úr gildi í síðasta lagi við uppsögn þessa notkunarsamnings.
Ytri hlekkir Hvorki aðgangur að, né efni á vefsíðum sem reknar eru af þriðju aðilum og sem smart aðgangurinn kann að innihalda tengla á, er háð yfirráðum smart. smart tekur enga ábyrgð á slíkum vefsíðum. smart áréttar sérstaklega að það gerir ekki efni slíkra vefsíðna að sínu og tekur enga ábyrgð á nákvæmni, heilleika og aðgengi innihalds þeirra á hverjum tíma. smart tekur heldur enga ábyrgð á ótrufluðum aðgangi að vefsíðum þriðju aðila eða öðrum bilunum á slíkum vefsíðum.
Ábyrgð; skaðabætur 7.1 Skaðabótaskylda smart og fyrirtækja tengdum smart, óháð lagagrundvelli slíkrar skyldu, gildir aðeins ef um ásetning eða stórfellt gáleysi er að ræða. Ef um minniháttar gáleysi er að ræða ber smart aðeins ábyrgð á tjóni sem hlýst af dauða, líkamstjóni eða heilsutjóni, eða tjóni sem hlýst af broti á grundvallarsamningsbundinni skuldbindingu í þeim tilvikum að efndir hennar eru forsenda þess að samningurinn sé efndur með réttum hætti eða sem samningsaðili reiðir sig og má reiða sig á að verði efnd. Í slíkum tilvikum (þar sem um er að ræða lítilsháttar gáleysi á grundvallarsamningsskuldbindingum) skal ábyrgð smart takmarkast við endurgreiðslu sanngjarnra, fyrirsjáanlegra og dæmigerðra skaðabóta. 7.2 smart tekur enga ábyrgð á nákvæmni og heilleika efnisins á smart aðganginum. Smart tekur enga ábyrgð á ótrufluðum aðgangi að smart aðganginum eða bilunum á vettvanginum. 7.3 Ábyrgð samkvæmt lögum um vöruábyrgð er óskert. 7.4 Þú samþykkir að bæta smart, hlutdeildarfélögum þess og hverjum og einum af yfirmönnum þeirra, stjórnarmönnum, starfsmönnum og umboðsmönnum, allt tjón sem stafar beint eða óbeint af eða í tengslum við vanrækslu eða brot af ásetningi gegn skilmálum þessum.
Breytingar á skilmálunum 8.1 smart kann að breyta þessum skilmálum af og til af rökstuddum ástæðum, einkum ef slíkar breytingar eru nauðsynlegar af lagalegum, tæknilegum eða öryggisástæðum eða ef slíkt er nauðsynlegt vegna reglna er um starfsemina gilda. a. Þú munt fá tilkynningu um slíkar breytingar fyrirfram með tölvupósti. Ef þú mótmælir ekki breytingum innan fjögurra vikna frá móttöku tilkynningarinnar teljast breytingarnar samþykktar. Ef þú mótmælir breytingunum hefur smart rétt til að segja upp samningssambandi við þig með tveggja vikna uppsagnarfresti, að því gefnu að smart hafi upplýst þig um rétt til uppsagnar og afleiðingar þess að mótmæla ekki breytingunum. Breytingar á helstu skuldbindingum samkvæmt samningi þessum sem myndu breyta efni samningsins skulu undanskildar breytingaferli samkvæmt a-lið þessa ákvæðis. b. Þú verður einnig upplýstur um breytingar á skilmálunum á smart aðgangi þínum og þú getur samþykkt breytingarnar þar. 8.2 smart getur þróað, breytt eða fjarlægt eiginleika smart aðgangsins og smart auðkennisins hvenær sem er. Þú átt ekki rétt á neinu sérstöku umfangi slíkra eiginleika. Lokun á smart aðganginum eða smart auðkenninu af snjallsíma mun þó aðeins eiga sér stað að undangenginni uppsögn.
Uppsögn 9.1 smart getur sagt upp notkunarsamningi fyrir smart aðganginn hvenær sem er skriflega eða með tölvupósti, þó með fyrirvara um sex vikna uppsagnarfrest. Ef smart aðgangurinn er nauðsynlegur til að nota þjónustu sem tengist smart aðganginum mun uppsögnin taka gildi á þeim tíma sem skyldu til að veita viðkomandi þjónustu lýkur. 9.2 Réttur til uppsagnar af gildum ástæðum skal vera óraskaður fyrir báða aðila.
Persónuvernd smart mun vinna með persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar [link of Icelandic Privacy Statement]. Persónuverndarstefnan er ekki hluti af þessum skilmálum eða neinum samningi við notandann.
Lögsaga; gildandi lög 11.1 Um skilmála þessa skulu gilda þýsk lög, án tillits til meginreglna þeirra um lagaskilarétt. Samningsaðilarnir eru sammála um að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1980 um alþjóðleg lausafjárkaup (United Nations Convention on Contracts for the International Sale of Goods, CISC) gildi ekki um skilmála þessa. Neytendur með heimilisfestu á Evrópska efnahagssvæðinu geta þó ávallt einnig skírskotað til ákvæða neytendaverndarlaga þess lands þar sem þeir hafa búsetu. 11.2 Ef notandinn er söluaðili, lögaðili samkvæmt opinberum rétti eða sérstakur sjóður samkvæmt opinberum rétti, skal lögsagnarumdæmi fyrir allar kröfur sem stafa af eða tengjast þessum skilmálum vera Leinfelden-Echterdingen , Þýskalandi.
- Upplýsingar um lausn deilumála með rafrænni málsmeðferð á Netinu; tilkynning skv. 36 VSBG 12.1 Framkvæmdastjórn ESB hefur komið á fót netvettvangi fyrir lausn deilumála (OS vettvangur), sjá https://ec.europa.eu/consumers/odr. Netfang okkar er hallo@support.smart.com. 12.2 smart mun ekki taka þátt í málsmeðferð við lausn deilumála fyrir gerðardómi neytenda í skilningi hinna þýsku Verbraucherstreitbeilegungsgesetz ( „VSBG")
- Sjálfstæði ákvæða; skil milli gildra og ógildra ákvæða Ef eitthvert ákvæða skilmála þessara er ógilt, ólögmætt eða óframkvæmanlegt, skal gildi, lögmæti og fullnustuhæfi annarra ákvæða á engan hátt verða fyrir áhrifum eða skert af því, nema að því marki sem þau ákvæði eru sjálf ógild, ólögmæt eða óframkvæmaleg.