Skilmálar stafrænnar þjónustu
I. Formáli og gildissvið
smart Europe GmbH, Esslinger Strasse 7, 70771 Leinfelden-Echterdingen, Þýskalandi, skráð hjá viðskiptaskrá dómstólsins í Stuttgart með númerið HRB 774212 (hér eftir " smart" eða " við") býður upp á sérstakmargs akonar stafræna þjónustu sem hægt er að nota í eða í tengslum við farartæki. Í sumum tilfellum er stafræn þjónusta hluti af grunnstillingum og aðgengileg í hverju ökutæki úr verksmiðju, allt eftir því hvaða gerð, árgerð og ríki um ræðir.
Þessir skilmálar stafrænnar þjónustu (hér eftir ,, skilmálar stafrænnar þjónustu" eða „skilmálarnir") stýra samningssambandi milli smart og notanda (hér eftir ,, þú") vegna kaupa og/eða niðurhals og notkunar stafrænnar þjónustu sem smart gerir aðgengilega, óháð því hvort þú ert aðalnotandi, aukanotandi eða gestanotandi (hér eftir ,, samningurinn"). Allir aðrir skilmálar og skilyrði gilda ekki, óháð því hvort smart hefur andmælt beitingu þeirra eða ekki.
Þessir skilmálar stafrænnar þjónustu gilda ekki
- um stafrænt efni og/eða þjónustu sem þriðji aðili veitir undir sínu vörumerki (t.d. tiltekin snjallforrit í bifreiðum). Ef við gerum slíkt stafrænt efni og/eða þjónustu aðgengilega fyrir þig í gegnum upplýsinga- og afþreyingarkerfi ökutækisins, í gegnum Hello smart snjallforritið eða í gegnum smart aðganginn þinn, gilda þessir skilmálar stafrænnar þjónustu einungis um veitingu slíks stafræns efnis og/eða þjónustu. Um kaup og notkun þessarar þjónustu þriðju aðila gilda skilmálar og skilyrði viðkomandi þjónustuveitanda;
- um kaup nýs ökutækis og/eða viðbótarvara, sem er háð þeirra eigin skilmálum og sem smart er ekki aðili að;
- um stofnun og skráningu smart auðkennis sem er háð sínum eigin skilmálum, sem hægt er að nálgast og vista á https://de.smart.com/de/service/terms-of-use/ (Notkunarskilmálar smart auðkenna).
II. Skilgreiningar
Í þessum skilmálum um stafræna þjónustu skulu hugtökin hér að neðan hafa eftirfarandi merkingu:
- ,, Fyrirtæki" merkir einstakling, lögaðila eða aðila sem, við gerð samningsins, starfar að fullu eða að mestu við viðskiptastarfsemi eða sjálfstæða atvinnustarfsemi sína.
- ,, Neytandi" merkir alla einstaklinga sem gangast undir samninginn í tilgangi sem er ekki, eða að mestu leyti ekki, í tengslum við viðskiptastarfsemi eða sjálfstæða atvinnustarfsemi.
- ,, Miðlægur skjár" merkir upplýsinga- og afþreyingakerfi farartækisins, sem getur verið notað til að stjórna virkni farartækisins og stafrænni þjónustu tengdri farartækinu á skjánum.
- ,, Stafrænn lykill" hefur þá merkingu sem lýst er í hluta V.3.
- ,, Stafræn þjónusta" merkir allt stafrænt efni og þjónusta sem smart veitir í tengslum við keypt farartæki og/eða sem má nota í og í tengslum við farartæki, þ. á m. Hello smart snjallforritið.
- ,, Gestanotandi" hefur þá merkingu sem lýst er í hluta V.2.
- ,, Hello smart snjallforrit" merkir snjallsímaforrit sem getur sýnt þér nákvæmar upplýsingar um farartæki í rauntíma, svo sem auðkennisnúmer farartækis þíns, eftirstöðvar drægni þess, stöðu rafhlöðu, staðsetningu þess, hvort gluggar og farangursgeymsla farartækis þíns séu lokuð, hvort farartæki sé lokað, loftþrýsting í dekkjum, loftgæði inni í ökutækinu, og sem nýtast sem stafrænn aðgangspunktur fyrir þitt farartæki og þinn smart aðgang.
- ,, Handhafi" merkir einstakling sem er skráður í ökutækjaskrá sem handhafi farartækisins.
- ,, Foruppsett þjónusta" hefur þá merkingu sem lýst er í hluta IV.2.
- ,, Aðalnotandi" hefur þá merkingu sem lýst er í hluta V.1.
- ,, Aukanotandi" hefur þá merkingu sem lýst er í hluta V.2.
- ,, smart aðgangur" merkir notendaaðgang sem búinn er til í gegnum vefsíðuna id.smart.com, þar sem þú gefur til kynna hvort þú sért neytandi eða fyrirtæki. smart aðgangurinn þinn er grunnurinn að upplifun þinni og gerir þér m.a. kleift að tengjast farartækinu, kaupa samsafn af vörum eða þjónustu sem er látin í té að aflokinni sölu, stjórna viðhaldsþjónustu og nota aðra þjónustu sem smart veitir. Vegna þeirrar þróunar sem stendur yfir, getur sú þjónusta sem smart aðgangurinn veitir breyst í framtíðinni.
- ,,smart samstarfsaðili" merkir sölu- og viðgerðarþjónustuaðila sem stenst kröfur smart, vegna ökutækja og viðbótarvara.
- ,, smart auðkenni" merkir einstaklingsbundið aðgengi að smart aðgangi þínum, sem tengist með netfangi sem þú veittir og sem er verndað með lykilorði sem þú skráðir þegar smart aðgangurinn þinn var stofnaður (og sem þú getur breytt síðar). smart auðkennið er þinn einstaklingsbundni lykill að allri smart vöru og þjónustu auk smart vistkerfisins. Stofnun og skráning smart auðkennis er háð eigin notkunarskilmálum, sem má nálgast og vista á https://de.smart.com/de/service/terms-of-use/. Á meðan skráningu stendur, verður þú að gefa til kynna hvort þú sért neytandi eða fyrirtæki og tryggja að upplýsingar sem þú veitir séu réttar, svo við getum haft samband við þig.
- ,, smart verslun" merkir netverslunarumhverfi sem smart gerir aðgengilegt hvenær sem er vegna sölu stafrænnar þjónustu, ef þessi aðgerð hefur þegar verið tekin í notkun.
- ,, Áskriftarþjónusta" hefur þá merkingu sem lýst er í hluta IV.2.
- ,, Ökutæki" merkir öll ný smart ökutæki seld af smart samstarfsaðila í þínu landi.
III. Umbætur
- Á meðan á kaupum og/eða niðurhali stafrænnar þjónustu stendur og við uppsetningu Hello smart snjallforritsins, verður þú látinn vita að þessir skilmálar um stafræna þjónustu gildi á viðkomandi stigi ferlisins.Þú þarft að samþykkja skilmálana til að gangast undir viðkomandi samning við okkur vegna kaupa og/eða niðurhals og/eða notkunar á stafrænni þjónustu.
- Eftir að þú hefur samþykkt þessa skilmála um stafræna þjónustu getum við breytt eða gert umbætur á þeim af og til af rökstuddum ástæðum, þar með talið, án takmarkanna, ef slíkar breytingar eru nauðsynlegar af lagalegum, tæknilegum eða öryggisástæðum eða ef slíkt er nauðsynlegt vegna reglna er um starfsemina gilda. Núgildandi útgáfu þessara skilmála um stafræna þjónustu er hægt að skoða, vista og prenta út hvenær sem er á https://de.smart.com/de/service/terms-of-service/. Breytingar á aðalskyldum samnings þessa, sem gætu breytt efni hans eins og lýst er í hluta X.3, eru undanskildar réttinum til breytinga eða umbóta.
- Þú verður látinn vita af slíkum breytingum með að minnsta kosti fjögurra (4) vikna fyrirvara með tölvupósti sem sendur er á netfangið sem skráð er með smart auðkenninu þínu. Þú verður einnig látinn vita af umbótunum í smart aðganginum þínum og getur samþykkt þær þar. Ef þú andmælir ekki breytingunum innan fjögurra (4) vikna eftir viðtöku breytingartilkynningarinnar, skulu breytingarnar teljast samþykktar. Ef þú hins vegar andmælir breytingunum, eigum við rétt á að slíta samningssambandinu með tveggja (2) vikna fyrirvara, að því tilskyldu að við höfum upplýst þig um slíkan uppsagnarrétt og afleiðingar þess að samþykkja ekki. Í því tilviki getur þú ekki halað niður og/eða notað tiltekna stafræna þjónustu í framtíðinni. Þetta gildir ekki um þá stafrænu þjónustu sem þú hefur nú þegar keypt og/eða halað niður og sem þarf ekki smart aðgang til að virka (t.d. varanleg stafræn þjónusta, svo sem hitun framsætis).
IV. Stafræn þjónusta
- Við bjóðum upp á fjölbreytta stafræna þjónustu, svo sem þjónustu og snjallforrit í bílum, (endurteknar) landakortauppfærslur, forrit fyrir sjálfvirkan akstur, hita í framsætum o.s.frv. Sú stafræna þjónusta sem við bjóðum upp á fyrir þitt ökutæki, gæti verið mismunandi eftir gerð, árgerð og búnaði ökutækis þíns sem og ríkinu þar sem ökutækið er notað. Einstökum stafrænum þjónustum er lýst í notendahandbókinni, í öðrum ökutækjatengdum upplýsingum sem þér eru veittar og/eða í smart aðganginum þínum. Notkun, niðurhal og/eða kaup tiltekinnar stafrænnar þjónustu gæti krafist aðgangs að smart aðganginum þínum í gegnum smart auðkenni þitt og/eða notkun Hello smart forritsins. Frekari upplýsingar um Hello smart snjallforritið eru aðgengilegar í snjallforritaverslun í farsímanum þínum.
- Ákveðin stafræn þjónusta er hluti af grunnstillingu ökutækisins og er uppsett frá verksmiðju.Hana þarf ekki að kaupa hana sérstaklega eða virkja í ökutækinu (hér eftir ,, foruppsett þjónusta"). Þar má nefna (ekki tæmandi talning),,,fjarstýrt öryggiseftirlitskerfi", sem fylgist með öryggi og notkun ökutækja, og ,,eCall" neyðarhringingarkerfi, sem er skyldubundið samkvæmt lögum Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins og krefst því ekki samnings samkvæmt þessum skilmálum fyrir stafræna þjónustu. Þú getur stjórnað stafrænni þjónustu í ökutækinu og virkjað eða afvirkjað einstaka stafræna þjónustu í gegnum miðlægan skjá ökutækisins. Einungis er hægt að nota ákveðna stafræna þjónustu í tengslum við Hello smart snjallforritið. Notkun slíkrar stafrænnar þjónustu krefst þess að þú tengir ökutækið við Hello smart snjallforritið. Frekari upplýsingar um vinnslu ökutækjaupplýsinga og persónuupplýsinga í tengslum við stafræna þjónustu fyrir ökutækið, er að finna í persónuverndarstefnu okkar, sem má nálgast hér:https://de.smart.com/de/service/data-protection/. Virkni ákveðinnar stafrænnar þjónustu gæti krafist virkar nettengingar. Annarri þjónustu þarf aðeins að hlaða niður einu sinni og er hægt að nota án nettengingar (t.d. hiti í framsætum). Foruppsett þjónusta er án endurgjalds. Ennfremur er hægt að hlaða niður/kaupa sumar stafrænar þjónustur með einni færslu, en önnur stafræn þjónusta getur verið háð áskriftarsamningi (,, áskriftarþjónusta"), ef slík áskriftarþjónusta hefur þegar verið tekin í notkun.
- Um ákveðna stafræna þjónustu gildir að sjálfgefið er að hún sé virkjuð fyrir ökutæki þitt. Slík þjónusta er bundin við það ökutæki sem er tengt við smart aðganginn þinn þegar kaup og/eða niðurhal þjónustunnar á sér stað. Slíka stafræna þjónustu er ekki hægt að færa yfir til annars ökutækis eða til annars smart aðgangs. Ef þú pantar stafræna þjónustu fyrir ökutæki þitt, lýsir þú því yfir að þú sért eigandi eða handhafi ökutækisins eða að eigandinn eða handhafinn hafi veitt þér rétt til að gera samning við smart um stafræna þjónustu. Til að tengja ökutæki þitt við smart aðganginn þinn í gegnum Hello smart snjallforritið, verður þú að samþykkja þessa skilmála fyrir stafræna þjónustu.
- Við áskiljum okkur rétt til að þróa frekar hina stafrænu þjónustu okkar hvenær sem er og bæta við, breyta eða fjarlægja einstaka virkni. Hvað varðar stafræna þjónustu sem hefur þegar verið halað niður og/eða hún keypt, verða breytingar, sem ekki eru minniháttar og óverulegar aðeins gerðar ef gild ástæða er til og ef slík breyting hefur ekki í för með sér neinn aukakostnað fyrir þig. Eftirfarandi aðstæður eru sérstaklega gildar ástæður og geta leitt til breytinga á stafrænni þjónustu: Aðlögun að nýju tækniumhverfi, aðlögun að auknum fjölda notenda, aðlögun vegna mikilvægra rekstrarástæðna, frekari þróun þjónustunnar, aðlögun vegna nýrra lagalegra krafna eða sem leiðir af niðurstöðum dómsstóla og aðlögun vegna gagnaöryggis, öryggismál hjá efnisveitum/þriðju aðilum eða af öðrum jafngildum ástæðum. Við munum upplýsa þig um væntanlegar breytingar sem varða þig og mögulegar lagalegar afleiðingar þeirra með minnst fjögurra (4) vikna fyrirvara í gegnum netfangið þitt, sem skráð er í smart auðkenni þitt eða í smart aðganginn þinn.
V. Notendur og stafrænn lykill
- Heimilt er skrá eiganda eða handhafa ökutækisins, eða þann sem þeir hafa veitt heimild, í smart aðganginn sem aðalnotanda ökutækisins (hér eftir ,, aðalnotandi"). Aðalnotandi hefur aðgang að allri stafrænni þjónustu sem í boði er fyrir ökutækið. Aðalnotandi er einnig eini notandinn sem getur bætt við stafrænni þjónustu í ökutækið og uppfært hana. Aðeins má tilnefna einn aðalnotanda ökutækisins. Ef tilnefndur er nýr aðalnotandi fyrir ökutækið, mun fyrri aðalnotandi sjálfkrafa missa stöðu sem aðalnotandi ökutækisins.
- Til að skrá einn eða fleiri viðbótarnotendur ökutækis umfram aðalnotanda, verður aðalnotandi að bjóða slíkum einstakling(um) í gegnum smart aðganginn. Ef slíkir viðbótarnotendur samþykkja boðið, er hægt að skrá þá sem aukanotendur, sem er aðgangur ætlaður einstaklingum sem nota ökutækið reglulega (hér eftir ,, aukanotandi"), eða gestanotandi ef þeir nota ökutækið einungis annað slagið (hér eftir ,, gestanotandi"). Aukanotendur og gestanotendur geta haft skertan aðgang að stafrænu þjónustunni eða engan aðgang að henni eftir því hvaða stafrænu þjónustu um ræðir. Aðal-, auka- og gestanotendur geta skráð sig í ökutækið samkvæmt notendahlutverki sínu. Innskráning fer fram með QR kóða sem birtist á aðalskjá ökutækisins og krefst þess að notandinn hafi smart auðkenni eða Hello smart snjallforritið. Einnig er hægt að nota ökutækið með gestastillingu án innskráningar. Í þeim tilvikum er ákveðin stafræn þjónusta ekki aðgengileg eða einungis aðgengileg að takmörkuðu leyti.
- Í gegnum Hello smart snjallforritið, getur smart aðgangurinn þinn virkað eins og lykill að ökutækinu þínu (hér eftir ,, stafrænn lykill"). Ef þú keyptir viðeigandi stafræna þjónustu í smart aðgangi þínum, er hægt að deila stafræna lyklinum með aukanotendum og gestanotendum. Til að deila stafrænum lykli, verður aðalnotandi að bæta við smart auðkenni aukanotenda og gestanotenda í Hello smart snjallforritið og velja að stafræna lyklinum sé deilt með þeim. Aukanotendur og/eða gestanotendur verða að hafa smart auðkenni og tengdan smart aðgang til að hægt sé að bæta þeim við og til að nota stafræna lykilinn. Ef þú deilir stafræna lyklinum, hafa viðkomandi aukanotendur og/eða gestanotendur aðgang að ökutækinu með því að nota stafræna lykilinn. Aðalnotandi getur einnig afskráð stafrænan lykil gestanotenda eða aukanotenda hvenær sem er í Hello smart snjallforritinu. Afskráningin verður þó einungis virk þegar ökutækinu hefur verið læst. Frekari upplýsingar varðandi stafrænan lykil er hægt að finna í Hello smart snjallforritinu og inni á smart aðganginum þínum. Stafræna lykilinn má ekki nota fyrir leiguþjónustu. Allir aukanotendur og gestanotendur verða að samþykkja þessa skilmála fyrir stafræna þjónustu áður en hægt er að deila stafrænum lykli með þeim.
VI. Nettenging
- Niðurhal og í sumum tilfellum notkun stafrænnar þjónustu í ökutækinu krefst gagnatengingar milli ökutækisins og netþjóna okkar. Þessari tengingu er komið á í gegnum farsímakerfi með notkun eSIM korts sem innbyggt er í ökutækið af fjarskiptaþjónustuveitanda, sem smart hefur gert samning við. Þar sem þessi gagnatenging er nauðsynleg, meðal annars til að veita lögbundið neyðarhringingarkerfi ,,eCall", er ekki hægt að gera hana óvirka. Gagnatengingin er notanda að kostnaðarlausu og hvað varðar ákveðna stafræna þjónustu þarft þú ekki að gera sérstakan samning við fjarskiptafyrirtæki til að niðurhala og/eða nota stafrænu þjónustuna.
- Í öllum öðrum tilvikum, þar sem notkun og/eða niðurhal á stafrænu þjónustunni krefst nettengingar eða annarrar fjarskiptaþjónustu, eins og til dæmis á við um Hello smart snjallforritið, þarft þú að gera sérstakan samning við fjarskiptaþjónustuna þína. Fjarskiptaþjónustuveitandinn kann að krefja þig um greiðslu fyrir notkun á þjónustu sinni og eftir atvikum fyrir gagnatengingu sem komið var á fyrir notkun og/eða niðurhal á stafrænni þjónustu. Þú munt þurfa að bera þennan kostnað.
- Ófullnægjandi gagnatenging getur skert notagildi ákveðinnar stafrænnar þjónustu. Virkni og frammistaða farsímatengingarinnar milli ökutækisins og netþjónsins er háð ýmsum þáttum sem eru ekki háð stjórnar eða ábyrgð okkar. Við undanþiggjum okkur allri ábyrgð vegna skorts á virkni stafrænnar þjónustu sem er afleiðing af ófullnægjandi gagnatengingu eða gagnatengingu sem virkar ekki sem skyldi og er háð stjórn okkar .
VII. Aðgengi
Við gerum allar sanngjarnar ráðstafanir til að veita stöðugt aðgengi að allri stafrænni þjónustu og endurheimta hana án tafar ef truflanir verða. Við berum þó enga ábyrgð á truflunum eða skerðingu á þjónustu af völdum óviðráðanlegra atburða (t.d. vopnuðum átökum, farsóttum, heimsfaraldri (þar á meðal Covid-19 heimsfaraldrinum), náttúruhamförum, mótmælum) eða af nauðsynlegu viðhaldi, viðgerðum eða öðrum ráðstöfunum á tækniaðstöðu okkar eða af hálfu þriðju aðila sem láta í té gögn, efni, upplýsingar eða flutningsgetu. Auk þess getur mikil samtíma notkun á stafrænni þjónustu leitt til takmarkana á þjónustunni.
VIII. Þráðlaus (OTA) uppfærsla forrita
- Í þeim tilgangi að endurheimta, viðhalda eða bæta aðgengi og öryggi stafrænnar þjónustu, kunnum við að bjóða þér af og til þráðlausa uppfærslu á hugbúnaði ökutækisins án endurgjalds (hér eftir „ þráðlaus hugbúnaðaruppfærsla") .
- Þar sem þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur eru háðar aðgengi að nettengingu sem og búnaði ökutækisins, getur niðurhals- og uppsetningartími þráðlausu hugbúnaðaruppfærslunnar verið breytilegur, frá nokkrum mínútum upp í nokkrar klukkustundir.
- Við hvetjum þig eindregið til að framkvæma þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur, þar sem uppfærslurnar gætu verið nauðsynlegar fyrir öryggi ökutækis þíns. Ef þú gerir það ekki, erum við ekki ábyrg fyrir neinum virknitakmörkunum og öryggisgöllum sem stafa af stafrænni þjónustu og/eða gagnatengingunni. Ef þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur eru ekki framkvæmdar erum við ekki ábyrg fyrir því að viðhalda uppfærslugetu. Í sumum tilfellum eru ákveðnar þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur nauðsynlegar til að tryggja öryggi ökutækisins.
IX. Ef þegar tekið í notkun: Kaup stafrænnar þjónustu
Til viðbótar við foruppsetta þjónustu getur þú niðurhalað og/eða keypt viðbótar stafræna þjónustu í gegnum smart verslunina, ef sá eiginleiki er nú þegar í boði á þínum markaði. Kynning á stafrænni þjónustu er ekki lagalega bindandi tilboð heldur frekar boð til þín um að gera tilboð um að kaupa og/eða niðurhala viðkomandi stafrænni þjónustu.
X. Ábyrgð og skaðabótaskylda
- Ef um galla er að ræða í stafrænni þjónustu, gilda lögbundin ábyrgðarréttindi, eins og þau eru afmörkuð hér að neðan.
- Stafræn þjónusta sem veitt er án endurgjalds og er sérstaklega merkt sem ,,beta" er á þeim tíma í prófunar- og þróunarfasa. Ef um slíkar beta útgáfur er að ræða, er ekki víst að allar aðgerðir séu tiltækar og virkni stafrænu þjónustunnar gæti verið takmörkuð. Beta útgáfur eru gerðar aðgengilegar án nokkurs samkomulags um sérstakt eðli þeirra, gæði og/eða virkni og án nokkurs samkomulags um hentugleika þeirra til ákveðinnar notkunar.
Kröfur vegna galla hafa fyrningarfrest samkvæmt ákvæðum laga. Þrátt fyrir framangreint, er fyrningarfrestur eitt (1) ár ef þú ert lögaðili, sérstakur lögbundinn sjóður eða fyrirtæki. Hins vegar skal stytting fyrningarfrests ekki gilda um tjón sem stafar af broti með stórfelldu gáleysi eða ásetningi á skuldbindingum af hálfu okkar, löglegra fulltrúa okkar eða smart umboðsmanna, eða ef um er að ræða líkams-áverka eða heilsutjón.
- Ábyrgð smart vegna einfaldrar vanrækslu takmarkast við veruleg brot á skyldum. a. sem eru nauðsynlegar fyrir venjulega framkvæmd samningsins; b. þar sem brotið verður til þess að að tilgangi samningsins verði náð; og c. sem þú getur treyst á við venjulegar aðstæður.
Ef um er að ræða brot á slíkri skuldbindingu, erum við einungis ábyrg fyrir fyrirsjáanlegu, dæmigerðu tjóni vegna samningsins. Þetta á einnig við um brot á skyldum af hálfu þeirra sem við höfum veitt umboð til að koma fram fyrir okkar hönd eða smart umboðsmanna. Persónuleg ábyrgð slíkra aðila eða starfsmanna vegna tjóns er þeir valda með einföldu gáleysi er undanþegin.
Ofangreindar undanþágur frá ábyrgð eiga ekki við ef um er að ræða a. tryggingu veitta af smart eða samið hefur verið um eðli stafrænnar þjónustu við smart; b. andlát, líkams- og heilsutjón; c. hvers kyns ábyrgð vegna þess að smart viðhefur vísvitandi leynd um galla; eða d. ef um skaðabótaábyrgð er að ræða í samræmi við lög um skaðsemisábyrgð.
- Raunverulegur samningsbundinn gagnaðili þinn vegna hvers konar stafrænnar þjónustu sem ekki virkar er smart. Jafnvel þótt smart samstarfsaðili (t.d. Askja) aðstoði þig varðandi bilun eða virknivanda við stafræna þjónustu, felur það ekki í sér að samstarfsaðili smart teljist ábyrgur gagnvart þér hvað varðar stafrænu þjónustuna. Samstarfsaðila smart er einungis heimilt að veita grunnaðstoð vegna stafrænnar þjónustu og ber að veita leiðbeiningar um bilanaúrræði smart (hvað heitir það úrræði, vantar þær upplýsingar frá smart) þar að lútandi.
XI. Þínar ábyrgðskyldur
- Við mælum eindregið með því að þú gerir allar tiltækar ráðstafanir (t.d. varðandi lykilorð tækis, greiningu áauðkenning með myndrænu mynstri, o.s.frv.) til að vernda tækið þitt, sem þú notar til að fara inn í Hello smart snjallforritið og/eða til að nota aðra stafræna þjónustu, gegn misnotkun eða óviðkomandi aðgangi þriðja aðila.
- Okkur er rétt og skylt að gera viðeigandi ráðstafanir til að verjast ógnum frá netárásum á öryggi ökutækja, umferðaröryggi, líf, heilsu, einkalíf, eignir, fjármuni og aðra lögmæta hagsmuni notanda, eiganda, handhafa eða umsjónarmanns ökutækis eða þriðju aðila sem og smart sjálfs. Slíkar ráðstafanir geta leitt til takmarkana á stafrænni þjónustu og/eða gagnatengingu. Háð alvarleika ógnunarinnar og/eða mikilvægi þeirra lögmætu hagsmuna sem ógnað er, gæti (tímabundin) stöðvun, á allri eða hluta stafrænnar þjónustu verið nauðsynleg auk þess sem truflun á gagnatengingu gæti verið nauðsynleg. Í því tilviki getur verið að ekki sé hægt að nota stafrænu þjónustuna.
- Þér er skylt að tryggja að notkun stafrænnar þjónustu brjóti ekki í bága við lögbundnar skyldur, einkum varðandi umferðaröryggi, eignarrétt eða viðurkenndar venjur. Þetta felur í sér að tryggja þarf að uppsett stafræn þjónusta hafi verið sett upp með samþykki eiganda og/eða handhafa ökutækisins.
- Ef þú selur ökutækið eða ráðstafar því með öðrum hætti, er þér skylt að eyða ökutækinu úr smart reikningi þínum, þar sem þú ert ekki lengur skráður sem aðalnotandi ökutækisins og þar með getur þú ekki notað tiltekna stafræna þjónustu lengur, sem er bundin við smart auðkenni þitt; þessi stafræna þjónusta er ekki framseljanleg til þriðja aðila og verður því heldur ekki seld þriðja aðila. Önnur stafræn þjónusta er þó varanlega bundin ökutækinu (t.d. stýrishitun). Þú þarft einnig að eyða persónulegum gögnum þínum á miðlægum skjá ökutækisins.
- Ef þú, sem aðalnotandi, leyfir þriðja aðila að nota ökutækið, skalt þú upplýsa viðkomandi um að ökutækið sé tengt við smart auðkenni þitt og að þú gætir þannig fengið aðgang að upplýsingum um notkun þeirra á ökutækinu. Þú skalt vekja athygli þeirra á möguleikanum á að stjórna aðgangi að gögnum í gegnum miðlægan skjá ökutækisins. Skilmála fyrir stafræna þjónustu og persónuverndaryfirlýsingu okkar má finna hér: https://de.smart.com/de/service/data-protection/.
- Ef þú ert viðskiptaaðili og gerir ökutækið aðgengilegt þriðju aðilum, svo sem starfsmönnum, verður þú að hafa í huga að þú gætir fengið aðgang að persónuupplýsingum viðkomandi notenda ökutækisins. Í slíkum tilvikum ert þú ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga um hlutaðeigandi notendur ökutækisins. Sem ábyrgðaraðili er þér skylt að vernda lögbundin réttindi viðkomandi notenda ökutækisins.
- Þú mátt ekki: a. afrita, þýða, breyta, bakþýða, taka í sundur eða bakhaga (e. reverse engineer) stafrænu þjónustuna eða á annan hátt reyna að endurheimta frumkóðann og/eða algrímið, nema annað sé tekið fram í þessum skilmálum fyrir stafræna þjónustu eða samkvæmt lögum; og/eða b. fjarlægja, fara í kringum, bakhaga, afkóða eða á annan hátt breyta eða eiga við stafræna réttindastjórnun eða afritunarvarnir sem tengjast stafrænu þjónustunni eða annarri tækni sem notuð er til að stjórna aðgangi að stafrænu þjónustunni.
XII. Gildistími og uppsögn
- Þú getur sagt upp samningnum um notkun stafrænnar þjónustu hvenær sem er með því að fjarlægja tenginguna milli smart auðkennis þíns og stafrænu þjónustunnar, eða með því að eyða smart auðkenni þínu alveg. Eyðing Hello smart snjallforritsins telst ekki uppsögn á samningnum. Í öllum tilvikum leysir uppsögn samnings samkvæmt þessum kafla XII.1 þig ekki undan greiðsluskyldu vegna áskriftarþjónustu (eins og hún er skilgreind í hluta IV.2) ef slík áskriftarþjónusta hefur þegar verið tekin í notkun og þú hefur keypt áskriftarþjónustuna.
- Uppsögn samkvæmt grein XII.1 gæti haft áhrif á möguleika þína á að nota stafræna þjónustu sem er háð smart auðkenni þínu og smart aðgangi þínum, svo sem Hello smart snjallforritið eða stafræna lykilinn. Við uppsögn samningsins getum við því ekki látið þér í té eiginleika sem krefjast smart auðkennis. Þetta á þó ekki við um stafræna þjónustu sem er varanlega tiltæk eftir niðurhal og/eða kaup og sem krefst ekki smart aðgangs eða aðgangs að Hello smart snjallforritinu til að virka (t.d. hita í framsætum).
- Áskriftarþjónusta er aðgengileg í ákveðinn tíma eða um óákveðinn tíma. Sé hún aðgengileg í ákveðinn tíma verður hún aðgengileg til loka umsamins tíma. Tímabilið má sjá í smart aðgangi þínum. Á þessu tímabili er venjuleg uppsögn á áskriftarþjónustunni útilokuð. Þegar gildistíminn rennur út verður áskriftarþjónustan sjálfkrafa gerð óvirk. Ef ekki hefur verið samið um skilmála má segja áskriftarþjónustunni upp innan þess tíma sem gefinn er upp í lýsingu á áskriftarþjónustunni á smart aðgangi þínum.
- Ef þú selur eða ráðstafar ökutækinu á annan hátt hefur það engin áhrif á gildistíma þjónustunnar sem þú ert áskrifandi að. Slík sala veitir ekki rétt til að segja upp áskriftarþjónustunni.
- Réttur þinn og okkar til uppsagnar vegna gildra ástæðna er óhaggaður.
- smart getur, að eigin geðþótta, lokað fyrir aðgang þinn að stafrænu þjónustunni í heild eða að hluta, tímabundið eða varanlega, ef rökstuddar grunur er um að þú sért að brjóta eða hafir brotið í bága við þessa skilmála fyrir stafræna þjónustu eða viðeigandi lög. Þegar ákveðið er hvort loka eigi á þig mun smart taka tilhlýðilegt tillit til lögmætra hagsmuna þinna. Ef þú brýtur ítrekað í bága við þessa skilmála þrátt fyrir að hafa verið látinn vita, áskilur smart sér rétt til að loka varanlega fyrir aðgang þinn að smart auðkenni þínu (fyrir nánari upplýsingar skaltu skoða notkunarskilmála smart auðkennis). Smart mun án tafar tilkynna þér um slíka lokun með tölvupósti sem skráður er með smart auðkenni þínu.
XIII. Lokaákvæði
Ef eitthvert ákvæði í þessum skilmálum fyrir stafræna þjónustu er talið ógilt eða óframkvæmanlegt skal það ekki hafa áhrif á gildi og framfylgni annarra hluta þessara skilmála.
Ef þú ert fyrirtæki, skuldbinda samningsaðilar sig jafnframt til að skipta út ógildum eða óvirkum ákvæðum fyrir ákvæði sem, eins vel og hægt er, samræmast viðskiptalegum tilgangi ógilda eða óvirka ákvæðisins.
- Um kaup og/eða niðurhal og notkun á stafrænni þjónustu, um samninginn og efndir hans og öll lagaleg ágreiningsefni vegna þessa skal fara að þýskum lögum án tillits til meginreglna þeirra um lagaskilarétt. Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um alþjóðleg lausafjárkaup gildir ekki. Ófrávíkjanleg lög sem gilda í búseturíki neytanda skulu þó ganga framar þýskum lögum, sé það neytanda í hag.
- Ef þú ert söluaðili skal varnarþing vegna allra krafna í tengslum við samninginn vera Stuttgart, Þýskalandi. Sama gildir ef þú ert ekki með almenna lögsögu í Þýskalandi, flytur búsetu eða hefur fasta búsetu utan Þýskalands eftir að samningur hefur verið gerður eða ef búsetustaður þinn eða vanalegt aðsetur er ekki þekkt þegar mál er höfðað.
- Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins býður upp á vettvang fyrir lausn deilumála á netinu undir http://ec.europa.eu/consumers/odr/. Netfangið okkar er hallo@support.smart.com. smart er ekki skuldbundið og tökum ekki þátt í deilumálum samkvæmt þýskum lögum um lausn neytendamála (þ. Verbraucherstreitbeilegungsgesetz, VSBG).
Síðast endurskoðað 28.8. 2023